Trékyllisvík
Trékyllisvík

Upplýsingar
Hnit
66°01´32´´N 21°30´13´´W
Flatarmál
12 km2
Meðal dýpi
40 m
Mesta dýpi
47 m
Trékyllisvík er allstór vík vestan við Ingólfsfjörð milli Krossness og Reykjaneshyrnu og er þar 4.3 km á breidd. Lengd frá víkurmynni er um 3,2 km.. Austan við mynni hennar er skerjaklasinn Illagrunn. Dýpi í Trékyllisvík er um 40 m en mesta dýpi 47 m. Innarlega í víkinni er örgrunnt. Þar er ein eyja sem heitir Árnesey. Lítið undirlendi er í Trékyllisvík og snarbrött fjöll umlykja hana. Við Trékyllisvík byrjar Húnaflói sem skerst langt inn í landið.