Jökulfirðir

Upplýsingar
Hnit
66°17'N 22°49'W
Flatarmál
169 km2
Meðal dýpi
70-90 m
Mesta dýpi
105 m
Austur úr Ísafjarðardjúpi utanverðu gengur breiður flói eða fjörður sem fimm firðir kvíslast frá til norðurs austurs og suðurs. Heita þeir einu nafni Jökulfirðir. Þeir voru friðlýstir árið 1975. Jökulfirðir bera nafn með réttu því að tveir þeirra ganga upp undir Drangajökul. Fjöll að þeim eru allhá og brött en undirlendi lítið. Mynni Jökulfjarða afmarkast af Bjarnarnúp að austan en Grænuhlíð að vestan og breidd þess um 7,4 km en mjókkar heldur er innar dregur. Mesta lengd Jökulfjarða frá mynni þeirra inn í botn Hrafnsfjarðar eru 29 km. Flatarmál þeirra með innfjörðum er 169 km2. Dýpi í mynni Jökulfjarða eru um 90 metrar og gengur áll eftir miðju fjarðarins svipaður að dýpt alveg inn undir innstu firði en þar grynnkar hratt upp á 30 til 40 metra. Aðdjúpt er mjög að ströndunum. Mesta dýpi er um miðjan fjörðinn rúmlega 100 metrar.
Hesteyrarfjörður
Hesteyrarfjörður er vestastur Jökulfjarða og gengur til norðurs úr þeim. Hann er breiðastur í mynni fjarðarins um 2,6 km og er svipaður að breidd inn undir Seleyri en mjókkar mikið þar fyrir innan og í botn.
Lesa meira
Veiðileysufjörður
Veiðileysufjörður er austan við Hesteyrarfjörð. Hann er stærstur Jökulfjarða og gengur til norðurs úr þeim. Hann er breiðastur í mynni fjarðarins um 3,4 km og fer jafnt og þétt mjókkandi inn í botn.
Lesa meira
Lónafjörður
Lónafjörður er innstur þeirra fjarða í Jökulfjörðum sem ganga til norðurs. Rétt innan við mynni hans eru tvær eyrar sitthvorum megin fjarðar, Borðeyri vestan megin og Sauðungseyri austan megin.
Lesa meira
Hrafnsfjörður
Hrafnsfjörður er innstur Jökulfjarða. Hann er þeirra næststærstur og liggur til austurs. Rétt innan við mynni hans skerst inn í hann til suðurs allmikil vík, Kjós. Í fjarðarmynni er fjörðurinn breiðastur um 2,3 km...
Lesa meira
Leirufjörður
Leirufjörður er syðstur Jökulfjarða, liggur til suðurs og líkist mjög Kaldalóni að gerð. Skriðjökull frá Drangajökli teygir sig niður í Leirufjörð og jökulár frá honum hafa borið mikinn leir í fjörðinn.
Lesa meira